sunnudagur, september 12, 2004

Fyrsta djammið 

Hún Imbsi limbs hélt uppá 25 ára afmælið sitt á föstudagskvöldið og var svo grand á því að leigja bara traffic, ekki slæmt. En Ég mætti þangað galvösk og fékk mér í glas í fyrsta skipti svona eitthvað að ráði síðan um páskana 2003, vávávááá, en maður er víst farinn að róast með aldrinum:) Jæja en ég var í fullu fjöri til hálf tvö, búin að skella í mig nokkrum og orðin pínu kembd. Áffa systir kom með alla krakkana og gisti hjá mér til að passa þar sem Guðni var ekki heima, og hana langaði hvort eð er í heimsókn, svo það var ekki slæmt að fá hana í barnapössun. En ég var svo sem ekki lengi þar sem sundið var að byrja daginn eftir og sonna og maður varð að vera með fulle fem þá, þó að maður hafi nú fengið að finna pínu fyriri því daginn eftir, mest þó þreyta og solleidis. Jæja ég er á fullu í skólanum og að kenna handavinnu í skóla hér í Keflavík, svaka fjör og nóg að gera, svo það er best að fara að skella sér í sturtu og svo í háttin.
bæ í bili


Sund 

Jæja þá erum við loksins byrjuð aftur í ungbarnasundi á framhaldsnámskeiði. Við fórum í gærmorgun og tók ég Soffíu ömmu hans með þar sem Guðni var á Húsavík að keppa og alltaf gott að hafa einhvern með sér. Elli var voða hissa þegar hann kom ofan í enda ekki búinn að fara í sund síðan í júní. En það var fljótt að koma. Svo í lok tímans gaf ég honum ofaní lauginni og drengurinn sofnaði bara. Það fór þvílíkt vel um hann, ofan í heitri laug, að fá heita mjólk, og minn bara steinrotaðist ýkt sætur. En hann var fljótt vakinn aftur þar sem það átti eftir að skola af honum klórinn, vonda mamman. En hann sofnaði þó fljótt aftur og svaf í rúminu sínu eftir að við komum heim í 3 tíma, alveg búinn.


sunnudagur, ágúst 22, 2004

Nýjar myndir 

Var að setja inn nýjar myndir í ágúst albúm á barnalandi, endilega kíkið á litla skriðdýrið mitt :)

Skóli skóli skóli 

Jæja þá er nú skólinn byrjaður hjá mér, eða fjarnámið. Ég tek sem sagt 3 fög í fjarnámi og svo tvö plús vettvangsnám í staðnámi en það byrjar ekki fyrr en 6. september. Ég fór til Reykjavíkur á miðvikudag, eða Kópavogs, og gisti í 3 nætur með Ella hjá Álfheiði þar sem hún var að passa fyrir mig á meðan ég var í skólanum. Ég er í Aðferðafræði rannsókna, textíl og búningasögu og matreiðsla og heimilisstörf í fjarnámi. Þetta lítur allt mjög skemmtilega út og er ég bara spennt. Við erum að fara aftur í bæinn í dag því Kata og Karen eiga afmæli, eru 13 ára, og ætlum að gista aftur í 3 nætur. Mamma er í bænum með íbúð og verðum við hjá henni þar sem hún ætlar að passa fyrir mig á mánudag. Svo kemur smá pása þar til 6 sept, en þá fer ég í bútasaumog kennslufræði og svo vélsaum og tölvur. Þannig að það verður nóg að gera í vetur:) Guðni fer í orlof 1.sept svo ég ætti alveg að fá tíma til að læra, vonum það a.m.k. :) Jæja best að fara að skella sér í bæinn.


laugardagur, ágúst 14, 2004

Skriðdreki á heimilinu 

Þvílíkar breytingar á einu barni á no time. Hann er núna út um allt blessaður drengurinn, mjakar sér einhvernvegin aftur á bak og svo snýr hann sér hring eftir hring þangað til hann er kominn í hinn enda íbúðarinnar. Hann fer undir stóla, borð, og allt sem hægt er að komast undir, m.a. skiptiborðið. Allt þetta gerðist bara á einni nóttu, það hefur eitthvað verið í grautnum...........
Svo skellur höfuðið í gólfið, með smá dink, og hann grettir sig þvílíkt þar sem hann veit að það kemur skellur, býr sig alveg undir það, ýkt sætur :)
Ég ætla að reyna að festa þetta allt saman á filmi sem fyrst, þá video, er búin að taka fullt af myndum og set þær inn sem fyrst. Einhverjar eru komnar inn en ekki allar. En mér finnst þetta yndislegt, að sjá svona kríli vaxa og þroskast, og geta alltaf meira og meira með hverjum degi, bara gaman að því:)
En ætli það sé ekki best að far að sinna honum, er kominn undir skrifborðsstólinn og er fastur...... :) yndislegur hehehehehe

miðvikudagur, ágúst 11, 2004

HITIIIIIIIII 

Vá hvað það var heitt í dag, og það á að vera heitara á morgun, úff púff. Fór út að ganga með Ella og greyið getur bara ekkert sofið í þessum hita. Hann var nánast ber í vagninum greyið, bara á samfellu og með ekkert ofan á sér (nema svuntuna og net) og enga húfu. Svona veður er ekki alveg ég, gæti líklega ekki búið á Spáni eða einhverstaðar, lifði þó Arabíu af........ ég er skrítin:) En ætli við Elli verðum ekki bara í baði heima hjá okkur á morgun ef það stefnir í heitari dag:) Og merkilegt, ég fór út á snúru áðan og það er enn bara geggjað heitt, fór bara á stuttbuxum og hlírabol, það finnst mér að vísu geggjað. Væri til í að öll sumarkvöld væru svona, en ekki dagarnir:) er ekki hægt að púsla þessu einhvernvegin..............................

Tilraunir 

Alltaf er maður að prófa sig áfram í uppeldinu og öllu sem því tengist. Í dag keypti ég einhverja spes baðolíu fyrir Ella og ætla að prufa og sjá hvort að hann verði eitthvað betri í húðinni. Er líklega með exem greyið, en veit bara ekki afhverju það er ,er hætt að nota mýkingarefni og hætt að gefa honum acd dropana og mér finnst hann aðeins betri, en sjáum hvernig olían virkar :)

sunnudagur, ágúst 08, 2004

Appelsínudjús og ungabörn 

Ég held að ég sé alveg búin að sanna það að appelsínudjús fari ekki vel í ungabörn. Ég var að byrja að fá mér aftur djús eftir að ég átti og var ekkert að fara varlega í það enda fannst Elli orðinn það stór að hann ætti nú að þola þetta, en greinilega ekki. Það komu núna tvær nætur í röð sem hann vakanaði grátandi á klt. fresti og aðra nóttina sofnaði hann ekki fyrr en 3, var grátandi í fanginu á mér frá 24-03, mjög gaman. Svo var hann líka með svona heiftarlega í maganum (gaman fyrir ykkur að vita það:)). En í gær prófaði ég að sleppa djúsnum og viti menn, það heyrðist ekki í drengnum í nótt, og hann svaf eins og steinn. Óg það verður gaman að sjá hvernig hann verður í nótt:)

Svo var hann í pössun í gær, eða Inga Magga og Kristín pössuðu hann hérna heima þar sem við skruppum í afmæli, og var hann voða góður eins og venjulega þetta yndi:) Það verður líka að fara að venja hann við pössun þar sem ég er að fara í skólann eftir aðeins rúma viku, úff úff, er komin með smá í magann, finnst ýkt erfitt að vera að fara svona frá honum, sérstaklega þar sem skólinn er ekki nálægt og ég get ekki bara skroppið heim. Væri til í að vera bara alveg heima, en þetta verður maður að gera ef ég ætla einhverntímann að verða eitthvað......:) annað en nobody:).........................
Jæja nóg bull í bili
góða nótt

Héðan og þaðan 

Jæja, eins og allir sjá er ég mjög dugleg að blogga....................En það er þó betra að koma seint inn en aldrei ekki satt. En versló er sem sagt liðin :) og við komin heim. Við fórum uppí bústað í Borgarfirðinum á föstudagskvöld og gistum tvær nætur. Ella kallinum fannst svo gaman að hann hafði engann tíma til að fara að sofa og sofnaði ekki fyrr en eftir miðnætti á fös, en svaf þá líka lengi á laugardagsmorguninn foreldrunum til mikillar ánægju:) Svo var spilað langt fram eftir nóttu og sötrað og étið, og var ávaxtakörfunni meira að segja stútað (innihaldinu).

En á laugardeginum var farið niðrí Borgarnes að versla og Elli svaf úti hjá ömmu á meðan og Guðni fór að veiða. Ég og Ingibjörg skelltum okkur í verslunarleiðangur og var mikið keypt, meðal annars stígvél á drenginn nr. 23 og inniskór nr 29 :) ég gat bara ekki sleppt þeim, þeir voru svo Njarðvíkurlegir og drengurinn á nú vonandi eftir að stækka eitthvað:) En svo var brennan á laugardagskveldinu og allir í stuði, m.a. Elli sem ekki vildi vera í vagninum sínum á meðan heldur bara innan um allt fólkið í fjörinu. Við komum honum svo niður um tólf leitið.

Á sunnudeginum fórum við Elli niður í Borgarnes að heimsækja Jóhönnu vinkonu sem er á Íslandi í smá tíma, og var sko alveg kominn tími til að við hittumst þar sem ég hef ekki séð hana síðan ég fór til N.Y. um páskana 2002. Og það var rosa gaman hitta hana, hefði að vísu viljað stoppa lengur en við vorum svo að fara að bruna til Kef um kvöldið og eyddum síðasta kvöldinu um versló heima í rólegheitum sem er alltaf gott:)

Á mánudeginum fórum við svo að heimsækja Ella og Þórey sem nýlega eignuðust tvíbura og þeir eru bara sætir og litlir. Elli var bara HUGE við hliðina á þeim, ýkt fyndið, en hann var víst einu sinni lítill:) fljótt að gleymast. Já og svo var bara helgin búin:)

föstudagur, júlí 30, 2004

Versló versló:) 

Þá er verið að leggja íann uppí bústað á Gónhólsgleði 2004. Mér skilst að það stefni í svaka fjör, ógeðisdrykkur og fleira, og aldrei að vita nema það verði varðeldur líkt og í fyrra. Ja núna er ég a.m.k. ekki ólétt eins og síðast svo nú skellir maður kanski í sig nokkrum köldum, hver veit:) mmmmmmm
Jæja en skemmtið ykkur vel um helgina, og gangið hægt um gleðinar dyr. Og ekki gera neitt sem ég myndi ekki gera (sem er nú ekki mikið hehehehe).
FARIN

mánudagur, júlí 26, 2004

5 mánaða skoðun 

Við fórum í fimm mánaða skoðun í morgun og er Elli bara að standa sig eins og hetja. Hann er orðinn 8245 gr. og 69 cm. og fylgir alveg sinni kúrfu sem er fínt. Búin að vera með einhverjar áhyggjur, fannst hann ekki þyngjast og sonna, en þarf greinilega ekki að vera að hafa þær. Svo fékk hann sprautu og það heyrðist ekki í honum, hörkutól  drengurinn, enda líkur mömmu sinni :) hehehehe

This page is powered by Blogger. Isn't yours?